Blogg:
Það eru tvær leiðir til að skrifa blogg. Hægt er að fara vinstra megin í „skrifa blogg“ undir „Blogg“ eða „Skrifa blogg“ sem er efst.
Setja video á blog:
Til þess að setja inn video eins og af Youtube er kóðinn af videoinu afritaður þar sem bloggið er skrifað. En ath. Það þarf að velja <> merkið sem er neðst svo að videoið birtist í sinni réttri mynd.
Setja inn tengla og myndir í blogg:
Ef farið er með músarbendilinn yfir valmöguleikana þar sem bloggið er skrifað stendur hvað hver takki gerir. Þar er möguleiki „setja inn mynd“ og „setja inn tengil“
Flokkar:
Hægt er að flokka bloggfærslur eftir efni. Hægra megin á síðunni þar sem bloggað er, er valmöguleikinn „Flokkar“ Þar er hægt að haka við viðeigandi flokk. Einnig er hægt að bæta við flokkum með því að skrifa inn heiti á nýja flokknum og ýta á „búa til“
Eyða færslum eða breyta færslum:
Með því að fara inn í „umsjón bloggs“ undir „Blogg“ ættu færslurnar þínar að koma upp. Þú getur eytt þeim með því að ýta á „eyða“ einnig getur þú falið þær með því að ýta á „fela“ og látið færsluna birtast aftur með því að smella á „birta“
Til þess að breyta færslum er klikkað á fyrirsögnina á færslunni og þar er hægt að breyta færslu og muna að vista að lokum.
Breyta útliti:
Undir „útlit“ er valið „velja þema“ þá kemur upp gluggi með þeim útlitsmöguleikum sem í boði eru. Útlit er valið með því að smella á möguleikann.
Breyta uppröðun á bloggi og bæta við aukahlutum:
Undir „útlit“ er valið „uppsetning“ þar inni er hægt að færa boxin til handvirkt eftir því hvar þau eiga að vera staðsett á síðunni. Til þess að bæta við aukahlut þarf að velja „bæta við aukahlut“ sem er vinstra megin og færa hann yfir á aðalvalmynd svo hann birtist á síðunni. Muna að vista að lokum.
Til þess að breyta nafni á aukahlut er tvísmellt á nafn aukahluts, þá er hægt að skrifa.
Setja inn myndir:
Veljið „setja inn myndir“ sem er efst þegar komið er inn á vefstjórn. Veljið heiti á albúmi og skrifið lýsingu(ekki nauðsynlegt) og veljið næst „stofna albúm“ sem er neðst. Næst kemur valmöguleikinn „Bæta við myndum“ þar veljið þið myndir sem þið viljið hafa í myndaalbúminu. Ýtið á „áfram“ og veljið að lokum „vista“
Könnun:
Undir „umsjón“ vinstra megin er hægt að velja „könnun“ þar er klikkað á „ný könnun“ Skrifið inn spurningu og svarmöguleika. Einnig þarf að velja dagsetningu sem könnunin á að byrja á. Athugið að ef könnun á að vera virk þarf að haka við „virkja könnun“. Hægt er að afvirkja og virkja kannanir undir „umsjón á könnunum“
Setja undirsíður:
Undir „umsjón“ er valið „undirsíður“ Þar næst er smellt á „ný síða“ Skrifið titil og svo eitthvað í textaboxið. Þarna er hægt að hafa síðu eins og „um mig“ og í þeim dúr. Muna að haka við „sýna í aðalvalmynd“ svo undirsíðan birtist þar.
Eyða kommentum úr gestabókum:
Undir „Umsjón“ er valið „Gestabók“ þar koma fram færslur sem hafa verið skrifaðar í gestabók og hægt er að eyða þeim með því að smella á „eyða“
Stillingar:
Undir „stillingar“ í „umsjón“ er hægt að breyta titli og fyrirsögn á bloggi. Hér getur þú einnig læst síðunni með lykilorði og læst gestabók.
Læsa síðu með lykilorði:
Undir „umsjón“ farið í „stillingar“ og hakað við „læsa með lykilorði“ þá birtist box þar fyrir neðan þar sem lykilorðið er skrifað. Muna að ýta á „vista stillingar“ að lokum.
Eyða bloggi:
Til þess að eyða bloggi er farið í „eyða bloggi“ undir umsjón og smellt á „eyða bloggi“